Samantekt um þingmál

Seðlabanki Íslands

420. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að tryggja skýra lagalega umgjörð varðandi umsýslu fjár og eigna sem koma til vegna stöðugleikaframlags fjármálafyrirtækja. 

Helstu breytingar og nýjungar

Sérstöku félagi í umsjón Seðlabankans verði falið að taka við og annast síðar sölu á eignum. Áréttað er að Bankasýsla ríkisins annist umsýslu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á bráðabirgðaákvæði III í lögum um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001.
  • Skylt mál: Tekjuskattur o.fl., 172. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 145. þingi (24.09.2015)

Kostnaður og tekjur

Lítilsháttar aukakostnaður sem rúmast væntanlega innan fjárheimilda.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri meginbreytingu að félagið sem annast sölu á eignum verði í umsjón fjármála- og efnahagsráðuneytisins og áréttað er að þau verðmæti sem Seðlabankinn tekur við, þ.e. stöðugleikaframlag, renni í ríkissjóð.

Aðrar upplýsingar

Bankasýsla ríkisins.


Síðast breytt 18.03.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.