Samantekt um þingmál

Fjármálafyrirtæki

561. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að framlengja til ársloka 2017 ákvæði um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., sem upphaflega var samþykkt með neyðarlögunum 2008.

Helstu breytingar og nýjungar

Ákvæðið veitir Fjármálaeftirlitinu heimild til þess að grípa til sérstakra ráðstafana við ákveðnar aðstæður eða atvik til þess að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjármálamarkaði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002.

Kostnaður og tekjur

Hefur líklega ekki áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Fjármálaeftirlitið
Von er á frumvarpi að nýjum heildarlögum um viðbúnað, skil og slit fjármálafyrirtækja sem innleiðir tilskipun 2014/59/ESB





Síðast breytt 04.05.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.