Samantekt um þingmál

Tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi

618. mál á 145. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að framlengja núgildandi lög um fimm ár, þ.e. til ársloka 2021.

Helstu breytingar og nýjungar

Endurgreiðsluhlutfallið verður hækkað úr 20% í 25% og sérstök nefnd mun sjá um úthlutunina. Niðurstaða nefndarinnar verður kæranleg til ráðuneytis.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi nr. 43/1999.

Kostnaður og tekjur

Miðað við samþykkt fjárlaga fyrir árið 2016 þýðir hækkun úr 20% í 25% um 60 milljóna króna útgjaldaauka fyrir árið 2017.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum.


Síðast breytt 02.06.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.