Samantekt um þingmál

Meðferð sakamála

659. mál á 145. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Að setja skýrari skilyrði fyrir beitingu tiltekinna aðgerða í þágu rannsóknar. Þær aðgerðir sem um ræðir eru símahlustun, upptaka á hljóðum og merkjum, taka ljósmynda og kvikmynda og notkun eftirfararbúnaðar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimild lögreglu til að beita símahlustun og skyldum aðgerðum við rannsókn mála verði þrengd. Gert er ráð fyrir að þeim sem aðgerð beinist að verði skipaður lögmaður sem gæta á hagsmuna hans. Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að lögreglu verði veitt frekara aðhald þegar kemur að framkvæmd símahlustunar og skyldra aðgerða.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um meðferð sakamála, nr.  88/2008.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að kostn­aður ríkissjóðs umfram gildandi fjárlög 2016 muni aukast um 20 milljónir kr. árið 2017 og árlega um 11 milljónir kr. frá og með árinu 2018. 

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með orðalagsbreytingum. Við bættist bráðabirgðaákvæði þar sem ráðherra er falið að kanna og greina leiðir í því skyni að veita lögreglu aðhald við rannsókn mála, svo sem öflun og meðferð fjarskiptaupplýsinga, upptöku á hljóðum og merkjum og ljósmyndun og notkun eftirfararbúnaðar.

Aðrar upplýsingar

Lög á Norðurlöndunum.

Noregur
Lov om rettergangsmåten i straffesaker (Straffeprosessloven) LOV-1981-05-22-25.
Kafli 16a  Avlytting og annen kontroll av kommunikasjonsanlegg (kommunikasjonskontroll).

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om rettens pleje. LBK nr 1255 af 16/11/2015.
Kafli 71 Indgreb i meddelelseshemmeligheden, observation, dataaflæsning og forstyrrelse eller afbrydelse af radio- eller telekommunikation.

Svíþjóð
Rättegångsbalk (1942:740).
27 kap. Om beslag, hemlig avlyssning av elektronisk kommunikation m.m.
Lag (2007:978) om hemlig rumsavlyssning.
Lag (2008:854) om åtgärder för att utreda vissa samhällsfarliga brott.

Finnland
Polislag 22.7.2011/872.
Sjá 5. kafla, Hemliga metoder för inhämtande av information.
Tvångsmedelslag 22.7.2011/806.




Síðast breytt 20.09.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.