Samantekt um þingmál

Sjúkratryggingar

676. mál á 145. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að verja sjúklinga fyrir mjög háum greiðslum fyrir heilbrigðisþjónustu. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til nýtt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar og að ákveðnar verði mánaðarlegar hámarksgreiðslur sjúkratryggðra.
Stefnt er að því að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um sjúkratryggingar nr. 112/2008.

Kostnaður og tekjur

Samkvæmt kostnaðarmati er gert ráð fyrir 46 milljóna kr. lækkun á útgjöldum ríkissjóðs verði frumvarpið að lögum. Nokkur óvissa er um áhrif breytinganna á notkun þjónustunnar. Gert er ráð fyrir viðbótarframlagi í fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna þessa og til að sporna við hækkandi hlutdeild einstaklinga í kostnaði við heilbrigðisþjónustu, að hámarki 400 milljónum kr.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með breytingum. Þær kalla á undirbúning við eflingu heilsugæslunnar, uppfærslu hugbúnaðar og breytingar á stjórnvaldsfyrirmælum. Gildistökuákvæði laganna var því breytt og er nú 1. febrúar 2017.


Síðast breytt 03.06.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.