Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lagaákvæðum um álagningu skatta og gjalda

211. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að efla rafræna stjórnsýslu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að rafræn birting verði meginreglan þegar kemur að birtingu tilkynninga um álagningu skatta og gjalda. Réttaráhrif birtingar á rafrænu formi verða þau að þegar tilkynning um álagningu er birt á rafrænu svæði telst birting hafa átt sér stað.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um bifreiðagjald, nr. 39/1988.
Lög um erfðafjárskatt, nr. 14/2004.
Lög um tryggingagjald, nr. 113/1990.
Lög um fjársýslugjald, nr. 165/2011.
Lög um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004.
Lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Lög um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015.
Lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003.
Skipulagslög, nr. 123/2010.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið samþykkt þykir líklegt að ríkið muni spara um 120 milljónir kr. á ári.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með þeirri breytingu einni að fyrirsögn þess var breytt lítillega.

Aðrar upplýsingar

Þjónustugáttin Ísland.is.


Síðast breytt 10.12.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.