Samantekt um þingmál

Þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður

471. mál á 149. löggjafarþingi.
Birgir Ármannsson.

Markmið

Að auka aðstoð við þingmenn, einkum þá sem enga beina aðstoð hafa. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að skrifstofustjóri Alþingis ráði starfsmenn þingflokka að fenginni tillögu þingflokks til þess að aðstoða þingmenn í störfum þeirra. Að auki er lagt til að formönnum stjórnmálaflokka, sem eiga sæti á Alþingi og eru ekki jafnframt ráðherrar, verði heimilt að ráða sér aðstoðarmann í fullt starf. Gert er ráð fyrir að ekki verði skylt að auglýsa störf aðstoðarmanna og að einfaldari reglur gildi um starfslok þeirra en annarra starfsmanna ríkisins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995.

Kostnaður og tekjur

Í greinargerð frumvarpsins er vísað til þess að framlög til ráðningar aðstoðarmanna þingmanna hafi verið tryggð í fjárlögum 2019. Samkvæmt fjárlögum 2019 er gert ráð fyrir að veitt verði 96 milljónum kr. til ráðningar aðstoðarmannanna. Kostnaðurinn lá ekki fyrir við vinnslu fjármálaáætlunar 2019–2023 en vilyrði var gefið fyrir því að kostnaður vegna ársins 2019 yrði fjármagnaður með millifærslu fjármuna af framkvæmdafé til nýbyggingar Alþingis. Árið 2020, þegar aðstoðarmenn verða orðnir 13, verður kostnaður fyrir ríkissjóð 156 milljónir kr. og árið 2021, þegar fjöldi aðstoðarmanna verður orðinn 17, mun kostnaðurinn nema 204 milljónum kr.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 17.12.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.