Samantekt um þingmál

Hollustuhættir og mengunarvarnir

512. mál á 149. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að draga úr notkun burðarpoka úr plasti.

Helstu breytingar og nýjungar

Með samþykkt frumvarpsins yrði tilskipun ESB nr. 2015/720 um breytingu á tilskipun 94/62/EB um að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti innleidd í íslensk lög. Lagt er til að eigi síðar en 31. desember 2019 skuli fjöldi burðarpoka úr plasti sem hver einstaklingur notar árlega vera 90 pokar eða færri og eigi síðar en 31. desember 2025 skuli fjöldi burðarpoka úr plasti sem hver einstaklingur notar árlega vera 40 eða færri. Gert er ráð fyrir að óheimilt verði að afhenda burðarpoka, þ.m.t. burðarpoka úr plasti, án endurgjalds á sölustöðum vara og að gjaldið skuli vera sýnilegt á kassakvittun. Lagt er til að þessar aðgerðir nái til allra burðarpoka úr plasti óháð þykkt þeirra. Enn fremur er lagt til að óheimilt verði að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er með eða án endurgjalds, á sölustöðum vara frá og með 1. janúar 2021. Gert er ráð fyrir að verslanir geti eftir sem áður haft burðarpoka úr plasti til sölu í hillum inni í sölurými verslana.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum. Gildistöku b-liðar 4. gr. var frestað til 1. september 2019.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/720  frá 29. apríl 2015 um breytingu á tilskipun 94/62/EB um að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti.


Síðast breytt 07.05.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.