Samantekt um þingmál

Almenn hegningarlög

543. mál á 149. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að rýmka tjáningarfrelsi en tryggja að 233. gr. a almennra hegningarlaga veiti um leið þá vernd sem hópum sem þar er vísað til ber samkvæmt mannréttindaákvæðum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að tjáningarfrelsi verði rýmkað með því að gera kröfu um nánar tiltekinn grófleika eða alvarleika til þess að sú tjáning sem ákvæðið tekur til varði refsingu. Þannig þarf tjáningin að vera til þess fallin að hvetja til eða kynda undir hatri, ofbeldi eða mismunun.

Breytingar á lögum og tengd mál

Almenn hegningarlög, nr. 19/1940.

Kostnaður og tekjur

Samþykkt frumvarpsins hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af straffeloven (straffeloven)  LBK nr 1156 af 20/09/2018.

Finnland
Strafflag  19.12.1889/39.

Noregur
Lov om straff (straffeloven)  LOV-2005-05-20-28.

Svíþjóð
Brottsbalk  ( 1962:700).


Síðast breytt 26.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.