Samantekt um þingmál

Innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta

637. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að lækka almennan hluta iðgjalds sem viðskiptabankar og sparisjóðir greiða til Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) vegna innstæðutrygginga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að hlutfallstala almenns iðgjalds lækki úr 0,225% í 0,16% og jafnframt er lagt til að gjaldið á ársfjórðungslegum gjalddögum lækki úr 0,05625% í 0,04%. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um innstæðustryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir beinum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeim breytingum að almennt iðgjald af innstæðum upp að 10 milljörðum kr. skal nema 0,02% á ári en 0,16% af innstæðum umfram þá fjárhæð. Að auki var gerð samsvarandi breyting á hlutfalli á ársfjórðungslegum gjalddögum.

Aðrar upplýsingar

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta.


Síðast breytt 02.07.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.