Samantekt um þingmál

Dreifing vátrygginga

764. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um dreifingu vátrygginga. Að tryggja netyendavernd og að þjónusta þeirra sem miðla og selja vátryggingar sé með sambærilegum hætti.

Helstu breytingar og nýjungar

Lögð er til ný heildarlöggjöf um miðlun og sölu vátrygginga, byggð á tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga ( Insurance Distribution Directive, IDD). Lagt er til að lögin nái einnig til sölu vátrygginga hjá vátryggingafélögum. Kveðið er á um ítarlegar kröfur um hæfi og hæfni þeirra aðila sem miðla og selja vátryggingar og lagt er til að skylt verði að veita viðskiptavinum mun meiri upplýsingar en nú tíðkast.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um miðlun vátrygginga, nr. 32/2005.
  • Skylt mál: Vátryggingarsamningar, 763. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 149. þingi (28.03.2019)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/97 frá 20. janúar 2016 um dreifingu vátrygginga (endurútgefin).


Síðast breytt 11.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.