Samantekt um þingmál

Mat á umhverfisáhrifum

775. mál á 149. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun 2014/52/ESB um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til fjölmargar breytingar á lögunum og nýmæli, svo sem ákvæði um gildistíma ákvörðunar um matsskyldu, ítarlegri kröfur um upplýsingar í frummatsskýrslu og mótvægisaðgerðir og vöktun framkvæmda. Þá er lögð til heimild til að samþætta skýrslugerð og til að sameina mat á umhverfisáhrifum samkvæmt þeim lögum, lögum um umhverfismat áætlana og skipulagslögum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.
Lög um umhverfismat áætlana, nr. 105/2006.
Skipulagslög, nr. 123/2010.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum breytingum en þeirri helstri að frumvarpið felur í sér hreina innleiðingu á tilskipuninni og voru þau ákvæði sem ekki lutu beint að innleiðingu hennar felld brott.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.



Síðast breytt 04.07.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.