Samantekt um þingmál

Útlendingar

838. mál á 149. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna. Að auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma til hagsbóta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og bæta þar með meðferð opinbers fjár.

Helstu breytingar og nýjungar

Á meðal þeirra álitaefna sem frumvarpinu er ætlað að taka á eru atriði er snerta forgangsmeðferð bersýnilega tilhæfulausra umsókna, sjónarmið í tengslum við frestun réttaráhrifa, hvenær taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar, hlutverk Barnaverndarstofu þegar kemur að veitingu alþjóðlegrar verndar í málefnum fylgdarlausra barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi, orðalag útilokunarástæðna við ákvörðun um ríkisfangsleysi, réttindi og skyldur flóttafólks sem kemur til landsins í boði íslenskra stjórnvalda, fjölskyldusameiningu flóttafólks og afturköllun verndar sem veitt er á grundvelli slíkra sameininga og hvenær veita beri þjónustu sem umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á skv. 33. gr. laganna og hvenær sé eðlilegt að hún falli niður. Með frumvarpinu er lagt til að stoð Dyflinnarreglugerðarinnar sé styrkt og málsmeðferð umsókna einfölduð þegar umsækjandi hefur þegar hlotið alþjóðlega vernd svo að auka megi skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um útlendinga, nr. 80/2016.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að áhrif þess á afkomu ríkissjóðs verði jákvæð með aukinni skilvirkni í málsmeðferð í útlendingamálum.

Afgreiðsla

Frumvarpið gekk ekki til 1. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 frá 26. júní 2013 um að koma á viðmiðunum og fyrirkomulagi við að ákvarða hvaða aðildarríki beri ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd sem ríkisborgari þriðja lands eða ríkisfangslaus einstaklingur leggur fram í einu aðildarríkjanna (Dyflinnarreglugerðin).


Útlendingastofnun: Málsmeðferð og verklagsreglur. Ríkisendurskoðun, nóvember 2018.


Síðast breytt 26.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.