Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

891. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að veita einstaklingum stuðning til að eignast eigið íbúðarhúsnæði og stuðla að lægri skuldsetningu vegna íbúðarhúsnæðis.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimildir til skattfrjálsrar ráðstöfunar og úttektar viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar í tengslum við öflun íbúðarhúsnæðis til eigin nota, sem eiga að falla úr gildi 30. júní 2019, verði framlengdar um tvö ár eða til 30. júní 2021.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Kostnaður og tekjur

Samanlagt tekjutap ríkis og sveitarfélaga er áætlað um 3 milljarðar kr. fyrir hvort ár sem heimildirnar eru framlengdar um.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga, apríl 2019.


Síðast breytt 11.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.