Samantekt um þingmál

Fjölmiðlar

458. mál á 150. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að efla einkarekna fjölmiðla til að gera þeim betur kleift að sinna hlutverki sínu í nútíma lýðræðissamfélagi.

Helstu breytingar og nýjungar

Frumvarpið felur í sér aðgerðir sem ætlað er að styðja við rekstur einkarekinna fjölmiðla. Gert er ráð fyrir að ríkið veiti styrki sem miðast við allt að 18% af kostnaði viðkomandi fjölmiðils við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis og umfjöllun um samfélagsleg málefni. Þá er að auki gert ráð fyrir sérstökum stuðningi sem nemur allt að 4% af launakostnaði launamanna fjölmiðils.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fjölmiðla, nr. 38/2011.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkissjóðs frá 1. janúar 2020 verði allt að 400 milljónum kr. 

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.

Aðrar upplýsingar




Síðast breytt 07.09.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.