Samantekt um þingmál

Náttúruvernd

611. mál á 150. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að leiðrétta skilgreiningu á hugtakinu óbyggt víðerni.

Helstu breytingar og nýjungar

Í stað þess að í 19. tölul., 5. gr. laga um náttúruvernd sé þess krafist að óbyggt víðerni sé í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkjum verður gert ráð fyrir að þessarar fjarlægðar verði að jafnaði krafist verði frumvarpið að lögum. Með þessari breytingu yrði skilgreiningin á óbyggðu víðerni færð til samræmis við þann tilgang sem stefnt var að í lagafrumvarpinu sem varð að lögum nr. 60/2013 og bætt úr mistökum sem urðu við meðferð þess.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um náttúruvernd, nr. 60/2013.

Kostnaður og tekjur

Lagabreytingin, sem lögð er til, mun ekki hafa áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 22.05.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.