Samantekt um þingmál

Samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir

662. mál á 150. löggjafarþingi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Markmið

Að heimila Vegagerðinni að semja, að undangengnu útboði, við einkaaðila um tilteknar samgönguframkvæmdir sem teljast brýnar, annaðhvort á grundvelli öryggissjónarmiða eða aðgengis- og byggðasjónarmiða, en myndu þrátt fyrir það ekki koma til framkvæmda í náinni framtíð vegna skorts á fjárheimildum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ráðherra verði veitt heimild til að setja tilteknar sex brýnar framkvæmdir í heild eða að hluta í hendur einkaaðila. Um er að ræða heimild til að semja við einkaaðila um fjármögnun framkvæmdanna, uppbyggingu þeirra og veghald. Þá er gert ráð fyrir að framkvæmdaraðila (einkaaðila) geti með samningi verið heimiluð gjaldtaka vegna viðkomandi framkvæmda.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir að til útgjalda komi af hálfu hins opinbera umfram það sem gert er ráð fyrir í ramma málefnasviðs samgangna í fjármálaáætlun.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Vegaframkvæmdir – leiðir til fjármögnunar. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, apríl 2019.


Síðast breytt 01.07.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.