Samantekt um þingmál

Aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum

665. mál á 150. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að lengja gildistíma 2. mgr. bráðabirgðaákvæðis 9 í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, til ársloka 2020. Bráðabirgðaákvæðið veitir heimild til að víkja frá vinnutímareglum laga nr. 46/1980 við gerð samninga við starfsmenn sem starfa við notendastýrða persónulega aðstoð.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að framlengd verði til ársloka 2020 heimild til að víkja tímabundið frá ákvæðum um vinnutímalengd í lögum nr. 46/1980 þegar gerðir eru samningar við starfsmenn sem starfa við notendastýrða persónulega aðstoð. Niðurstöður könnunar á framkvæmd þjónustu sem veitt er á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langavarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, sem gerð verður árið 2020, verða nýttar til að meta framkvæmdina og gera tillögur um framtíðartilhögun hennar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 01.07.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.