Samantekt um þingmál

Tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví

667. mál á 150. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að styðja atvinnurekendur sem greiða launamönnum sem sæta sóttkví laun þegar önnur réttindi, svo sem veikindaréttur samkvæmt kjarasamningum, eiga ekki við. Með því er stefnt að því að einstaklingar geti fylgt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda um að sæta sóttkví án þess að hafa áhyggjur af afkomu sinni. Frumvarpið er í anda yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins frá 5. mars 2020 um samkomulag um aðgerðir til að hægja á útbreiðslu COVID-19 veirusýkingarinnar.

Helstu breytingar og nýjungar

Gert er ráð fyrir því að heimilt verði að greiða úr ríkissjóði launakostnað vegna launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga sem ekki hafa getað sótt vinnu sökum þess að þeir hafa verið í sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda á tímabilinu 1. febrúar til og með 30. apríl 2020. Hámarks mánaðarleg launagreiðsla fyrir hvern einstakling er kr. 633.000 og hámarksgreiðsla á dag kr. 21.100.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Forsendur til að meta kostnað ríkissjóðs vegna ráðstafana sem frumvarpið gerir ráð fyrir eru veikar meðan enn er óljóst hversu mikil brögð verða að því að launafólki verði gert að fara í sóttkví vegna COVID-19 faraldursins en gert er ráð fyrir að verði frumvarpið óbreytt að lögum geti útgjaldaauki ríkissjóðs orðið 600 til 700 milljónir kr. Þar að auki er gert ráð fyrir að kostnaður vegna umsýslu Vinnumálastofnunar við þróun hugbúnaðar gæti numið 25 milljónum kr. auk þess sem gert er ráð fyrir stofnunin þurfi að bæta við þremur stöðugildum.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum en þeim helstum: að gildissvið frumvarpsins var útvíkkað þannig að það nái til þeirra tilvika þegar foreldri eða forráðamaður þarf að annast barn undir 13 ára aldri eða barn undir 18 ára aldri, sem þiggur þjónustu á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, vegna þess að það er í sóttkví án þess að vera sýkt og foreldri eða forráðamaður getur af þeim sökum ekki sinnt vinnuskyldu sinni að öllu leyti eða að hluta; og að réttur sjálfstætt starfandi einstaklinga hvað varðar viðmið fjárhæðar greiðslna verði sambærilegur við rétt launamanna og því verði miðað við mánaðarlegar meðaltekjur hans í stað 80%.

Aðrar upplýsingar

Yfirlýsing ríkisstjórnar, SA og ASÍ um laun í sóttkví, 5. mars 2020.


Síðast breytt 26.03.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.