Samantekt um þingmál

Almannavarnir

697. mál á 150. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að tryggja lagagrundvöll fyrir heimild opinberra aðila til að færa starfsmenn til í starfi á hættustundu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að tryggt verði svigrúm opinberra aðila til að færa starfsmenn milli starfa til að sinna verkefnum sem hafa forgang á hættustundu. Með því móti yrði hægt að fara fram á breytingu á starfsskyldum og starfsstöðvum viðkomandi starfsmanna eftir þörfum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um almannavarnir, nr. 82/2008.

  • Skylt mál: Almannavarnir, 443. mál (dómsmálaráðherra) á 151. þingi (18.01.2021)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum. Heimild opinberra aðila til að fela starfsfólki að gegna störfum í þágu almannavarna á hættustundu mun falla úr gildi 1. janúar 2021. Opinberum aðilum verður heimilað að flytja starfsmenn tímabundið milli starfsstöðva og til annarra opinberra aðila í þágu almannavarna á hættustundu. Undanþegnir skyldu ákvæðisins verða starfsmenn sé heilsufari þeirra, eða annarra einstaklinga sem þeir bera ábyrgð á, svo háttað að öryggi þeirra og heilsu sé stefnt í sérstaka hættu með því að fela þeim að gegna slíkum störfum.


Síðast breytt 17.04.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.