Samantekt um þingmál

Sjúkratryggingar

8. mál á 150. löggjafarþingi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Markmið

Að almenn sálfræðiþjónusta og önnur klínísk viðtalsúrræði falli undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands og verði þannig veitt á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að sjúkratryggingar taki til sálfræðimeðferðar og annarar klínískrar viðtalsmeðferðar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.

Kostnaður og tekjur

Mat á áhrifum á ríkissjóð liggur ekki fyrir.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum breytingum. M.a. var orðalagi breytt á þann veg að gagnvirk samtalsmeðferð kom í stað klínískrar viðtalsmeðferðar og ákvæðinu var breytt þannig að það næði aðeins til meðferðar sem veitt er af heilbrigðisstarfsmanni. Með því var tryggt að greiðsluþátttaka einskorðist við þjónustu sem veitt er af einstaklingi sem starfar við heilbrigðisþjónustu og hefur hlotið leyfi landlæknis til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar, s.s. sálfræðingar, félagsráðgjafar, geðlæknar og geðhjúkrunarfræðingar.


Síðast breytt 30.06.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.