Samantekt um þingmál

Merkingar og upplýsingaskylda varðandi vörur sem tengjast orkunotkun

12. mál á 151. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að innleiða með tilhlýðilegum hætti reglugerð (ESB) 2017/1369 um setningu ramma fyrir orkumerkingar og um niðurfellingu tilskipunar 2010/30/ESB. 

Helstu breytingar og nýjungar

Eitt af meginmarkmiðum reglugerðar (ESB) 2017/1369 er að stuðla að orkusparnaði með því að neytendur verði betur upplýstir um orkunotkun vara og hvetja til þess að orkunýtnari vörur verði frekar fyrir valinu. Þeir skulu jafnframt vera upplýstir um breytta virkni vöru áður en kemur til uppfærslu hennar og hafa möguleika á að hafna uppfærslu ef hún leiðir til verri orkunýtni. Settur er fram nýr og einfaldari kvarði fyrir merkingar vara og kerfa sem tengjast orkunotkun auk þess sem leitast er við að auðvelda upplýsingagjöf og umsjón með miðlægum vörugagnagrunni. Í einhverjum vöruflokkum hefur bætt hönnun leitt til bættrar orkunýtni þannig að flestar vörur falla í efstu orkunýtniflokkana. Í þeim tilvikum er kvarðinn breyttur með því að skilgreina strangari kröfur fyrir hvern flokk. Merkimiðar með breytta kvarða endurspegla skýrt þessa breytingu og eru áfram í samræmi við aðra merkimiða í útliti og uppbyggingu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, nr. 72/1994.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 frá 4. júlí 2017 um setningu ramma fyrir orkumerkingar og um niðurfellingu tilskipunar 2010/30/ESB.


Síðast breytt 07.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.