Samantekt um þingmál

Fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

201. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja við minni rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og aðgerða stjórnvalda til að verjast útbreiðslu hennar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að framlengja lokunarstyrki til þeirra rekstraraðila sem sæta þurfa lokunum eða því að láta af starfsemi eða þjónustu frá 18. september 2020. Lagt er til að úrræðið gildi fram á mitt ár 2021 og gert er ráð fyrir að taka þurfi það til endurskoðunar fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2021 með tilliti til aðstæðna og framgangs heimsfaraldursins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.

Kostnaður og tekjur

Þar sem ekki er vitað hvort beita þurfi lokunum á næstu mánuðum er ekki hægt að segja til um hver heildaráhrifin af því að framlengja aðgerðina yrðu á ríkissjóð. Áhrifin gætu þó numið allt að 370 milljónum kr. ef gert er ráð fyrir að allir fyrri umsækjendur eigi rétt á hámarksfjárhæð styrksins.

Afgreiðsla

Samþykkt með örfáum breytingum sem eru tæknilegs eðlis.


Síðast breytt 06.11.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.