Samantekt um þingmál

Framsal sakamanna og önnur aðstoð í sakamálum

223. mál á 151. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að gera feril réttarbeiðna skilvirkari og þar af leiðandi flýta með­ferð þeirra.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á lagaákvæðum um framsal sakamanna og réttarbeiðnir í sakamálum. Hvað framsal varðar er lagt til að ákvæði um tímalengd gæsluvarðhalds við meðferð framsalsmáls verði breytt í samræmi við ákvæði laga um meðferð sakamála sem og ákvæði um tímalengd úrskurðar um þvingunaraðgerðir eftir að ákvörðun um framsal hefur verið tekin. Þá er gert ráð fyrir að í vissum tilvikum getur hið beiðandi ríki sent beiðni beint til embættis ríkissaksóknara án milligöngu dómsmálaráðuneytisins. Jafnframt er lagt til að hægt verði að hafna beiðni um réttaraðstoð ef ljóst er að ekki sé hægt að verða við henni, s.s. ef um smávægilegt brot er að ræða eða ef rannsóknin mun hafa í för með sér óeðlilega mikla fyrirhöfn og kostnað.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum orðalagsbreytingum til leiðréttingar og lagfæringar auk þess sem 4. gr. var felld brott þar sem efni hennar má nú þegar finna í viðkomandi lögum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna.

Aðrar upplýsingar

Samningur Evrópusambandsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum (29. maí 2000).




Síðast breytt 05.01.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.