Samantekt um þingmál

Fiskeldi

265. mál á 151. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að stuðla að betri nýtingu fjarða og hafsvæða til fiskeldis.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimilað verði einnig að bjóða út lífmassa (margfeldi af fjölda og meðalþyngd eldisdýra á tilteknu eldissvæði í sjó eða landeldi) við fiskeldi í sjókvíum í stað þess að heimilt sé aðeins að bjóða út eldissvæði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fiskeldi, nr. 71/2008.
  • Skylt mál: Fiskeldi, 647. mál (sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra) á 149. þingi (05.03.2019)

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið að lögum getur það leitt til tekjuaukningar fyrir ríkissjóð en ekki kemur fram í frumvarpinu um hve háar upphæðir gæti verið að ræða.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum. Ákveðið var að breytingin í 1. gr. frumvarpsins yrði frekar sett fram sem bráðabirgðaákvæði, m.a. til þess að telja með tæmandi hætti í ákvæðinu þau svæði sem það skal taka til auk þess að kveða skýrt á um að ákvæðinu sé ekki ætlað að ná yfir aðrar úthlutanir í framtíðinni. Þá var ákveðið að við ákvörðun lágmarksverðs lífmassa til úthlutunar skuli taka mið af íslenskum aðstæðum og gjaldaumhverfi þar sem byggt er á hlutlægum og málefnalegum forsendum.


Síðast breytt 31.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.