Samantekt um þingmál

Viðspyrnustyrkir

334. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að stuðla að því að rekstraraðilar sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og aðgerða stjórnvalda til að verjast útbreiðslu hennar geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir, varðveitt viðskiptasambönd og tryggt viðbúnað þegar úr rætist.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til nýtt úrræði, viðspyrnustyrkir, til að koma til móts við vanda rekstraraðila vegna kórónuveirufaraldursins. Lagt er til að þeir rekstraraðilar sem hafa orðið fyrir minnst 60% tekjufalli í hverjum almanaksmánuði á tímabilinu frá nóvember 2020 til og með maí 2021, samanborið við sama almanaksmánuð árið 2019, geti fengið styrk til að mæta rekstrarkostnaði. Gert er ráð fyrir að styrkurinn geti numið allt að 90% af rekstrarkostnaði en hann geti þó ekki orðið hærri en sem nemur tekjufallinu í viðkomandi mánuði. Þá er gert ráð fyrir að viðspyrnustyrkur verði ekki hærri en 400 þúsund kr. fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðila og að hámarki 2 milljónir kr. ef tekjufall rekstraraðila var á bilinu 60–80% en 500 þúsund kr. fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðila og að hámarki 2,5 milljónir kr. ef tekjufall rekstraraðila var meira en 80%.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.
  • Skylt mál: Tekjufallsstyrkir, 212. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 151. þingi (16.10.2020)

Kostnaður og tekjur

Áætlað er að heildaráhrif á ríkissjóð verði líklega ekki hærri en 19,8 milljarðar kr. en þó er þetta mat háð mikilli óvissu.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum. Rekstraraðilum verður heimilt, við útreikning styrkfjárhæðar, að miða annaðhvort við fjölda stöðugilda í þeim mánuði sem umsókn styrks snýr að eða í sama mánuði árið 2019. Hafi rekstraraðili hafið starfsemi eftir upphaf sama almanaksmánaðar árið 2019 verður heimilt að miða við meðalfjölda stöðugilda hjá rekstraraðila þá heilu almanaksmánuði 2019 sem hann starfaði.

Aðrar upplýsingar

Ríkisstjórnin samþykkir enn frekari efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, 30. október 2020.


Síðast breytt 17.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.