Samantekt um þingmál

Barna- og fjölskyldustofa

355. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að setja á stofn nýja ríkisstofnun til að sinna ýmsum verkefnum sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að komið verði á fót nýrri stjórnsýslustofnun, Barna- og fjölskyldustofu, sem mun sinna verkefnum sem tengjast samþættingu þjónustu og almennri velferðarþjónustu í þágu barna. Með stofnun Barna- og fjölskyldustofu verður Barnaverndarstofa lögð niður og flest verkefni hennar flytjast til nýrrar stofnunar. Lagt er til að Barna- og fjölskyldustofa sjái um uppbyggingu úrræða og yfirstjórn heimila og stofnana fyrir börn sem nú er í höndum Barnaverndarstofu. Þá er lagt til að stofnunin sinni stuðningi við sveitarfélög og aðra þjónustuaðila vegna þjónustu í þágu barna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, barnaverndarlögum, nr. 80/2002, lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008, lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um útlendinga, nr. 80/2016.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir kostnaður vegna fjölgunar starfa geti orðið árlega allt að 250 milljónir kr. Einnig er gert ráð fyrir tímabundnum stofnkostnaði vegna fjölgunar starfsfólks um allt að 50 milljónir kr. Þá er gert ráð fyrir að kostnaður vegna gerðar gagnagrunns í barnavernd verði 150 milljónir kr. árið 2021 auk 10 milljóna kr. varanlegrar rekstrarfjárveitingar.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Viljayfirlýsing um aukið samstarf í þágu barna. Félagsmálaráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, 7. september 2018.

Þingmannanefnd um málefni barna. Félagsmálaráðuneytið, 8. október 2018.

Stýrihópur Stjórnarráðsins í málefnum barna. Félagsmálaráðuneytið, 22. janúar 2019.


Síðast breytt 24.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.