Samantekt um þingmál

Lögreglulög o.fl.

365. mál á 151. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að ráðast í tilteknar skipulagsbreytingar innan lögreglunnar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar er lúta að nefnd um eftirlit með störfum lögreglu í því skyni að gera starf hennar skilvirkara og jafnframt sjálfstæðara. Þá er lagt til að kveðið verði á um ýmsar aðrar breytingar sem snúa m.a. að valdbeitingu, samvinnu við erlend lögregluyfirvöld og lögfestingu hins nýstofnaða lög­­reglu­­ráðs. Einnig er lagt til að hæfisskilyrði lögreglustjóra taki lítillegum breytingum og að hæfnisnefnd lögreglu verði lögð niður.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lögreglulög, nr. 90/1996.
Lög um dómstóla, nr. 50/2016.
Lög um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, nr. 50/2014.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Prüm-samningurinn.




Síðast breytt 17.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.