Samantekt um þingmál

Tekjuskattur

374. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að útfæra tillögur starfshóps um endurskoðun skattstofns fjármagnstekjuskatts m.t.t. verðbólgu þar sem hún hefur áhrif á skattbyrði fjármagnstekna.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að frítekjumark vaxtatekna hjá einstaklingum, hvort sem þeir bera ótakmarkaða eða takmarkaða skattskyldu hér á landi, hækki úr 150.000 kr. í 300.000 kr. á ári. Þá er lagt til að frítekjumarkið nái einnig til úthlutaðs arðs og söluhagnaðar hlutabréfa í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga. Lagt er til að sömu reglur skuli gilda um söluhagnað af frístundahúsnæði til eigin nota og um íbúðarhúsnæði sem ekki er nýtt til eigin nota að því tilskildu að um langtímaeignarhald hafi verið að ræða (lágmark 5 ár frá söludegi) en ekki skammtímafjárfestingu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Lög um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir því að heildarlækkun tekna ríkissjóðs muni nema um 1,5–1,8 milljörðum kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum, m.a. þeim að stærðarmörk 1. mgr. 17. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, gildi jafnframt um sölu frístundahúsnæðis og að lágmarkseignarhaldstími á söludegi verði lengdur úr 5 í 7 ár. Þá voru greinar frumvarpsins um fjármagnstekjuskatt gengishagnaðar felldar brott.

Aðrar upplýsingar

Skattstofn fjármagnstekjuskatts og áhrif verðbólgu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, 1. nóvember 2020.


Síðast breytt 18.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.