Samantekt um þingmál

Ferðagjöf

377. mál á 151. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að bregðast tímabundið við neikvæðum áhrifum kórónuveirufaraldursins á starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja hérlendis.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að framlengja gildistíma ferðagjafar um fimm mánuði hvað varðar þær ferðagjafir sem ekki hafa þegar verið nýttar eða nýttar til fulls.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um ferðagjöf, nr. 54/2020.
  • Skylt mál: Ferðagjöf, 839. mál (ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra) á 150. þingi (22.05.2020)
  • Skylt mál: Ferðagjöf, 776. mál (ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra) á 151. þingi (04.05.2021)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir viðbótarkostnaði fyrir ríkissjóð þar sem með framlengingu tímabilsins er einungis átt við ónýttar gjafir og mun framlengingin því rúmast innan þeirra fjárheimilda sem lagt var upp með að veittar yrðu eða 1,5 milljarðar kr. 

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 18.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.