Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum til einföldunar á regluverki

444. mál á 151. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að einfalda starfsumhverfi atvinnulífsins eins og kostur er og taka til endurskoðunar og eftir atvikum fella brott úrelt lagaákvæði og óþarfa leyfisveitingar. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á ýmsum lögum sem snúa að einföldun regluverks og leyfisveitingum. Lagt er til að próf til viðurkenningar bókara sem ráðherra veitir verði aflögð. Þá er lagt til að fella burt lagaákvæði um tryggingardeild útflutningslána. Enn fremur er gert ráð fyrir að felld verði brott lög um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um bókhald, nr. 145/1994.
Lög um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, nr. 61/1997.
Lög um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015.
Lög um lausafjárkaup, nr. 50/2000.
Höfundalög, nr. 73/1972.
Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um verslunaratvinnu, nr. 28/1998 og lög um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga, nr. 27/1981.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að þeim sem það kjósa verði gefinn kostur á að ljúka prófum til viðurkenningar bókara fyrir 1. apríl 2024.


Síðast breytt 19.04.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.