Samantekt um þingmál

Aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum

456. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að framlengja heimild til að semja um rýmri vinnutíma en ákvæði laganna gera ráð fyrir vegna þeirra starfsmanna sem veita þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að framlengja gildistíma bráðabirgðaákvæðis 9 í lögunum til og með 31. desember 2021 þannig að áfram verði tryggt að unnt sé að semja um frávik frá ákvæðum laganna hvað varðar vinnutíma þeirra starfsmanna sem veita þjónustu á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir á meðan fram fer fyrirhuguð heildarendurskoðun á lögunum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að framlengja gildistímann til 1. apríl 2022 í stað 31. desember 2021.


Síðast breytt 26.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.