Samantekt um þingmál

Póstþjónusta og Byggðastofnun

534. mál á 151. löggjafarþingi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Markmið

Að mæla fyrir um þær lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að færa stjórnsýslu og eftirlit með póstþjónustu frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar. Að gæta þess að hlutverk Byggðastofnunar verði það sama og hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir tilfærsluna og að Byggðastofnun hafi allar sömu heimildir og skyldur sem lagðar voru á Póst- og fjarskiptastofnun.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðt er til að verkefni póstmála flytjist frá Póst- og fjarskiptastofnun yfir til Byggðastofnunar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um póstþjónustu, nr. 98/2019.
Lög um Byggðastofnun, nr. 106/1999.
  • Skylt mál: íslensk landshöfuðlén, 9. mál (samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra) á 151. þingi (01.10.2020)
  • Skylt mál: Fjarskipti, 209. mál (samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra) á 151. þingi (16.10.2020)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 24.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.