Samantekt um þingmál

Skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja

570. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun 2017/2399/ESB um breytingu á tilskipun 2014/59/ESB að því er varðar rétthæð ótryggðra skuldagerninga í réttindaröð við ógjaldfærnimeðferð.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að innleidd verði tilskipun 2017/2399/ESB um breytingu á tilskipun 2014/59/ESB að því er varðar rétthæð ótryggðra skuldagerninga í réttindaröð við ógjaldfærnimeðferð. Lagt er til að ákvæði 3. mgr. 102. gr. laga um fjármálafyrirtæki um rétthæð krafna við slitameðferð verði útfærð nánar. Þá er lagt til að kveðið verði á um nýja forgangsröð tiltekinna krafna sem skal gilda við skila- og slitameðferð og verður til fyllingar þeim almennu reglum um rétthæð krafna sem kveðið er á um í XVII. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020.
Lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
Lög um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum en þeirri helstri að 25. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja var breytt þannig að fortakslaus skylda lánastofnana til að halda skrá samkvæmt ákvæðinu var felld brott og skilavaldinu þess í stað veitt heimild til að krefjast þess að slíkri skrá sé komið á fót, ef það metur slíkt nauðsynlegt.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2399 frá 12. desember 2017 um breytingu á tilskipun 2014/59/ESB að því er varðar rétthæð ótryggðra skuldagerninga í réttindaröð við ógjaldfærnimeðferð.


Síðast breytt 11.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.