Samantekt um þingmál

Þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður

663. mál á 151. löggjafarþingi.
Steingrímur J. Sigfússon.

Markmið

Að takmarka rétt þingmanna til endurgreiðslu ferðakostnaðar í aðdraganda alþingiskosninga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að þingmenn sem sækjast eftir endurkjöri til Alþingis eigi ekki rétt til endurgreiðslu ferðakostnaðar þegar sex vikur eru til kjördags. Lagt er til að forsætisnefnd geti kveðið á um í reglum sínum að heimilt sé að endurgreiða alþingismanni ferðakostnað á þessu tímabili ef um er að ræða viðburði eða ferðir á vegum Alþingis eða þegar Alþingi er enn að störfum og þingmaður tekur þátt í störfum þess.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995.

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 14.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.