Samantekt um þingmál

Fjöleignarhús

748. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að laga tiltekin ákvæði laganna að tækniframförum í rafrænum samskiptum og landsskipulagsstefnu 2015–2026. Að bæta nýtingu og einfalda ákvarðanatöku vegna aðlögunar húsnæðis að þörfum eigenda fjölbreytts húsnæðis.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að eigendum fjöleignarhúsa verði heimilað að halda rafræna húsfundi og nota rafræn skjöl og tölvupósta í samskiptum milli stjórnar og félagsmanna. Þá er lagt til að húsfélögum í fjöleignarhúsum, þar sem bæði er að finna íbúðir og húsnæði sem nýtt er fyrir atvinnustarfsemi, verði heimilað að víkja frá ákvæðum laganna með setningu sérstakra húsfélagssamþykkta.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fjöleignarhús, nr. 26/1994.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum breytingum sem voru tæknilegs eðlis.

Aðrar upplýsingar

Þingsályktun um landsskipulagsstefnu 2015–2026, nr. 19/145.



Síðast breytt 16.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.