Samantekt um þingmál

Fasteignalán til neytenda

791. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að gera mörk þeirrar reglusetningarheimildar sem felst í 27. gr. laga um fasteignalán til neytenda skýrari.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að þau mörk sem gilda um hámark lána og greiðslubyrði þeirra sem hlutfall af tekjum verði skilgreind nánar. Einnig er lagt til að bætt verði við ákvæði um heimild Seðlabankans til að skilgreina undanþágur frá hámörkunum vegna ákveðins hundraðshluta af heildarfjárhæð veittra lána á tilteknu tímabili. Með samþykkt frumvarpsins verður betur tryggt að Seðlabanki Íslands hafi tiltæk nauðsynleg tæki til að styðja fjármálastöðugleika og draga úr alvarlegum röskunum í fjármálakerfinu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 23.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.