Samantekt um þingmál

Viðspyrnustyrkir

291. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að stuðla að því að rekstraraðilar sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og aðgerða stjórnvalda til að verjast útbreiðslu hennar geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir, varðveitt viðskiptasambönd og tryggt viðbúnað þegar úr rætist.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að viðspyrnustyrkjaúrræðið sem lögfest var vegna kórónuveirufaraldursins verði framlengt um fjóra mánuði frá desember 2021 til og með mars 2022. Gert er ráð fyrir að hámarksfjárhæð lokunarstyrkja verði hækkuð úr 260 milljónum kr. í 330 milljónir kr.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um viðspyrnustyrki, nr. 160/2020.

Kostnaður og tekjur

Áætlað er að kostnaður vegna framlengingar viðspyrnustyrkja gæti numið allt að 2 milljörðum kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að umsóknarfrestur vegna ágúst 2021 til nóvember 2021 miðist við 30. júní 2022, til samræmis við umsóknarfrest vegna mánaðanna frá desember 2021 til mars 2022.


Síðast breytt 14.03.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.