Samantekt um þingmál

Meðferð einkamála o.fl.

460. mál á 152. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að gera málsmeðferðarreglur afdráttarlausari, skýrari og samræmdari.

Helstu breytingar og nýjungar

Hægt verður í auknum mæli að sækja um kæruleyfi til Hæstaréttar Íslands og skilyrði verða rýmkuð til að áfrýja héraðsdómi beint til Hæstaréttar. Gildandi lagaákvæði verða ýmist skýrð eða einfölduð eða færð til betri vegar í ljósi fenginnar reynslu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991.
Lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
Lög um dómstóla, nr. 50/2016.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Ekki var mælt fyrir frumvarpinu.


Síðast breytt 28.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.