Leigubifreiðaakstur
470. mál á 152. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.
Markmið
Að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur á Íslandi.Helstu breytingar og nýjungar
Frumvarpið felur í sér nýja heildarlöggjöf um leigubílaakstur. Lagt er til að fallið verði frá takmörkunum á fjölda leigubifreiðaleyfa á ákveðnum svæðum (takmörkunarsvæðum) en slíkar fjöldatakmarkanir hafa leitt til ýmissa kvaða á leyfishafa um nýtingu leyfis. Þannig er gert ráð fyrir að öll ákvæði sem snúa að lágmarksnýtingu atvinnuleyfis verði óþörf, s.s. skilyrðið um að um sé að ræða aðalatvinnu leyfishafa, um veitingu undanþágu vegna veikinda, orlofs, um tímabundna innlögn leyfa, notkun forfallabílstjóra o.s.frv. Lagt er til að leyfishöfum beri ekki lengur skylda til að hafa afgreiðslu á leigubílastöð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að fá undanþágu frá skyldu til að vera með gjaldmæli þegar þjónusta er seld gegn fyrirfram umsömdu föstu gjaldi. Þannig skapast t.d. möguleiki til að útfæra lausnir sem falla að þjónustu sem farveitur bjóða upp á. Einnig er gert ráð fyrir að gefnar verði út tvær nýjar tegundir af leyfum til leigubílstjóra: 1) Atvinnuleyfi, sem er er leyfi til að starfa sem leigubílstjóri þrátt fyrir að leyfishafi reki ekki sjálfur leigubíl og 2) rekstrarleyfi, sem er leyfi til að starfa sem leigubílstjóri og reka eigin leigubíl.Breytingar á lögum og tengd mál
Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um leigubifreiðar, nr. 134/2001.- Endurflutt: Leigubifreiðaakstur, 10. mál (samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra) á 151. þingi (01.10.2020)
- Endurflutt: Leigubifreiðaakstur, 421. mál (samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra) á 150. þingi (28.11.2019)