Samantekt um þingmál

Loftslagsmál

471. mál á 152. löggjafarþingi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Markmið

Að lagfæra lagaákvæði, bæta við reglugerðarheimild og innleiða Evrópugerð.

Helstu breytingar og nýjungar

Orðaröðun í 1. mgr. 6. gr. b laganna verður lagfærð svo inntak ákvæðisins verði rétt. Bætt verður við heimild ráðherra til að setja reglugerð um jöfnunarskyldu flugrekenda samkvæmt kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Innleidd verður ákvörðun Evrópusambandsins sem varðar breytingu á áður innleiddri gerð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um loftslagsmál, nr. 70/2012.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Framseld ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1416 frá 17. júní 2021 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar að útiloka flug sem kemur frá Bretlandi frá viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. 


Síðast breytt 27.03.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.