Samantekt um þingmál

Skipulagslög

1052. mál á 153. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að aðstoða sveitarfélög við að skipuleggja fjölbreytta íbúðabyggð og stuðla að því að íbúðaþörf ólíkra hópa sé mætt.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að sveitarfélögum séu veittar heimildir til að gera kröfu um það við gerð deiliskipulags að allt að 25% af heildarfermetrafjölda íbúða innan skipulagssvæðis verði fyrir íbúðir sem falla undir lög um almennar íbúðir og íbúðir sem uppfylla skilyrði fyrir hlutdeildarlánum og lánum til leiguíbúða samkvæmt lögum um húsnæðismál.

Breytingar á lögum og tengd mál

Skipulagslög, nr. 123/2010.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar


Aðgerðir kynntar um meira öryggi og aukið framboð á húsnæðismarkaði. Forsætisráðuneytið, innviðaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, 19. maí 2022.


Síðast breytt 15.09.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.