Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2019

3. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að breyta ýmsum lögum sem tengjast tekju- eða gjaldahlið ríkissjóðs í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2019.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að kolefnisgjald hækki um 10% árið 2019 og aftur árið 2020. Einnig er lagt til að svokallaðir krónutöluskattar (olíugjald, almennt og sérstakt kílómetragjald, almennt og sérstakt bensíngjald, bifreiðagjald og gjald á áfengi og tóbak) hækki um 2,5%. Einnig er lagt til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og sérstakt gjald til Ríkisútvarpsins hækki um 2,5%. Gert er ráð fyrir að áfengisgjald verði miðað við upplýsingar sem fram koma á umbúðum áfengrar vöru. Lagt er til bráðabirgðaákvæði sem koma skal í veg fyrir að kostnaðarþátttaka heimilismanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum aukist við það að tengingar við tekjur maka voru afnumdar. Gert er ráð fyrir að bráðabirgðaákvæði til að sporna við því að víxlverkanir örorkubóta almannatrygginga og örorkulífeyris lífeyrissjóða hefjist að nýju verði framlengt. Að auki er lagt til að bráðabirgðaákvæði um hækkun á frítekjumarki örorkulífeyrisþega vegna atvinnutekna við útreikning tekjutryggingar verði framlengt. Enn fremur eru lagðar til breytingar á fjárhæð losunargjalds samkvæmt lögum um loftslagsmál. Flestar aðrar breytingar eru minni háttar og tengjast framlengingu bráðabirgðaákvæða og gjaldskrárhækkunum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Alls er verið að breyta 19 lögum.
  • Skylt mál: Fjárlög 2019, 1. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 149. þingi (11.09.2018)

Kostnaður og tekjur

Gjöld
Óveruleg áhrif á afkomu ríkissjóðs.

Tekjur
Áætlaður tekjuauki ríkissjóðs af 10% hækkun kolefnisgjalds er 550 milljónir kr. að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatt. Hækkun útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra nemur samtals 179 milljónum kr. Þá mun verðlagsuppfærsla krónutölugjalda (áfengi, tóbak, eldsneyti og bifreiðagjöld) auka tekjur ríkissjóðs um 1,6 milljarða kr. Heildaráhrif frumvarpsins til hækkunar á tekjum eru metin um 2,3 milljarðar kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 17.12.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.