Samantekt um þingmál

Almenn hegningarlög

132. mál á 151. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að treysta enn frekar vernd þeirra sem verða fyrir umsáturseinelti, ekki síst kvenna og barna.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að nýju refsiákvæði um umsáturseinelti verði bætt við almenn hegningarlög. Með ákvæðinu er gert refsivert að hóta, elta, fylgjast með, setja sig í samband við eða með öðrum sambærilegum hætti sitja um annan mann ef háttsemin er endurtekin og til þess fallin að valda hræðslu eða kvíða. Þá er lagt til að brot gegn ákvæðinu varði sektum eða fangelsi allt að fjórum árum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Almenn hegningarlög, nr. 19/1940.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamningurinn).

Löggjöf á Norðurlöndum

Finnland
Strafflag  19.12.1889/39.
Sjá einkum 7. gr. a í 25. kf.

Noregur
Lov om straff (straffeloven)  LOV-2005-05-20-28.
Sjá einkum 266. gr. og 266. gr. a í 24. kf.

Svíþjóð
Brottsbalk ( 1962:700). 
Sjá einkum 4. gr. b í 4. kf.


Síðast breytt 25.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.