Samantekt um þingmál

Jöfn staða og jafn réttur kynjanna

14. mál á 151. löggjafarþingi.
Forsætisráðherra.

Markmið

Að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. 

Helstu breytingar og nýjungar

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Það nýmæli er lagt til að bætt verði við ákvæðið um almennt bann við mismunun að fjölþætt mismunun sé óheimil. Í frumvarpinu er með fjölþættri mismunun átt við þegar einstaklingi er mismunað á grundvelli fleiri en einnar mismununarástæðu sem nýtur verndar samkvæmt frumvarpi þessu, lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, nr. 85/2018, og lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018. Þá er lagt til að lögin taki jafnt til kvenna, karla og fólks með hlutlausa skráningu kyns nema annars sé sérstaklega getið. Lagt er til nýtt heiti á lögunum og leitast er við að hafa orðnotkun frumvarpsins ekki kynjaða og karllæga. Einnig er lagt til að ekki verði lengur gert að skilyrði að miða við störf hjá sama atvinnurekanda í almenna ákvæðinu um launajafnrétti og skerpt er á ákvæðum um jafnlaunavottun.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna falla brott lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, og jafnframt verða breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að fjölga þurfi um eitt stöðugildi hjá Jafnréttisstofu vegna þeirra nýju verkefna sem henni eru falin skv. 7. og 8. gr. Stöðugildið rúmast innan fjárhagsramma málaflokks jafnréttismála.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum. Jafnréttisráð var lagt niður en þess í stað verður minnst einu sinni á ári kallaður saman samráðsvettvangur um jafnréttismál með fulltrúum frá aðilum vinnumarkaðarins, fræðasamfélaginu og samtökum sem vinna að kynjajafnrétti ásamt þeim aðilum sem óska eftir þátttöku.


Síðast breytt 18.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.