Samantekt um þingmál

Kyrrsetning, lögbann o.fl.

16. mál á 151. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að styrkja tjáningarfrelsi og lýðræðislega umræðu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til ákvæði þess efnis að ef gerðarþoli mótmælir framgangi lögbannsgerðar á þeirri forsendu að gerðin fari í bága við 73. gr. stjórnarskrárinnar og sýslumaður hafnar þeim mótmælum þá geti gerðarþoli borið þá ákvörðun undir héraðsdómara, þó svo að gerðarbeiðandi mótmæli því, svo fremi sem hann skuld­bindur sig til að láta af athöfn á meðan mál er rekið fyrir dómi. Þá er lagt til að mælt verði fyrir um að málsmeðferð í slíkum tilvikum skuli flýtt eins og kostur er. Auk þess er lagt til að dómari skuli fella mál strax niður ef gerð­ar­­beiðandi krefst þess þegar gerðarþoli virðir ekki þá skuldbindingu að láta af athöfn sinni.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr.  31/1990.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum orðalagsbreytingum sem ekki var ætlað að hafa efnisleg áhrif.


Síðast breytt 12.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.