Samantekt um þingmál

Náttúruvernd

276. mál á 151. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að stytta kynningartíma áforma um friðlýsingu og umsagnartíma um drög að friðlýsingarskilmálum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að tímafrestir sem eru ætlaðir til kynninga á áformum um tilteknar friðlýsingar og til kynningar á friðlýsingarskilmálum verði styttir. Þá er lagt til að undanþáguheimild frá ákvæðum frið­lýs­­­inga verði færð frá ráðherra til Umhverfisstofnunar. Auk þess er lagt til að bætt verði við skyldu til að kortleggja óbyggð víðerni.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um náttúruvernd, nr. 60/2013.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að kostnaður við kortlagningu óbyggðra víðerna verði á bilinu 5–10 milljónir kr. en rúmist innan fjárheimilda á málefnasviði 17 Umhverfismál.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 03.02.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.