Samantekt um þingmál

Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

311. mál á 151. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að auka skýrleika laganna og takmarka áhættu fyrir fólk sem býr eða dvelur á stöðum þar sem hætta er á ofanflóðum.

Helstu breytingar og nýjungar

Með frumvarpinu eru sett fram ákvæði um markmið með lögunum og aukið á skýrleika tiltekinna ákvæða. Þá eru lagðar til breytingar á ákvæðum um endurskoðun hættumats, eftirlit, nýtingu húseigna og innheimtu gjalda og jafnframt lögð til sektarákvæði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 24.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.