Samantekt um þingmál

Skipagjald

313. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að gera nauðsynlegar leiðréttingar og aðrar breytingar til að gera löggjöf á sviði skattamála skýrari.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ákvæði um skipagjald verði í nýjum lögum um skipagjald. Í frumvarpinu er kveðið á um fjárhæð skipagjalds eftir stærðarflokkum skipa og umsjón með álagningu, sem verður í höndum Samgöngustofu eins og áður hefur verið enda heldur stofnunin utan um aðalskipaskrá.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.
  • Skylt mál: Skipalög, 208. mál (samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra) á 151. þingi (16.10.2020)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum tæknilegum breytingum.


Síðast breytt 03.02.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.