Samantekt um þingmál

Tækniþróunarsjóður

321. mál á 151. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að flytja ákvæði um Tækniþróunarsjóð í sérlöggjöf svo að tryggður sé lagagrundvöllur fyrir starfsemi hans.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að sett verði sérlög um Tækniþróunarsjóð. Ekki eru lagðar til efnislegar breytingar á ákvæðum um sjóðinn í núgildandi lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun, nr. 75/2007, fyrir utan þá viðbót að skýrt er tekið fram að Tækniþróunarsjóði sé heimilt að styrkja rannsóknir og tækniþróun í samstarfi við erlenda sjóði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum breytingum. Ákvæði um heimild Tækniþróunarsjóðs til eignarhalds í sprotafyrirtækjum var felld brott. Bætt var við ákvæði þar sem skýrt er kveðið á um heimild stjórnar Tækniþróunarsjóðs til þátttöku í alþjóðlegum samfjármögnuðum verkefnum og að heimilt sé að byggja úthlutun styrkja á mati fagráða sem skipuð eru sameiginlega af samstarfsaðilum.

Aðrar upplýsingar

Tækniþróunarsjóður.


Síðast breytt 19.04.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.